Við erum systurnar Katla og Andrea Eysteinsdætur. Katla er 4 ára en Andrea er alveg að vera eins árs :o)


Um mig:
Lilypie Fourth Birthday tickers

Lilypie First Birthday tickers


Katla fæddist föstudaginn 7. september 2007 kl 15:00 á Hreiðrinu á Landspítalanum, eftir 39 vikna og 4 daga meðgöngu. Katla var 17 merkur (4240 gr) og 53 cm, með dökkan lubba og blá augu.

Í dag er Katla orðin töluvert stærri, hárið er orðið ljóst (ljósskollitað) en augun eru ljósblá.


Andrea fæddist líka á Hreiðrinu fimmtudaginn 3. febrúar 2011 kl 14:57, eftir 39 vikna og 3 daga meðgöngu. Andrea var rúmlega 17 merkur (4285 gr) og 54 cm. Hún var með mikið dökkt hár og stór blá augu.

Í dag er Andrea með mjög ljóst hár (nánast hvítt), en augun eru ljósblá.


Þær systur eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær fæddust alveg á sama tíma sólarhringsins (munaði 3 mín), á sömu fæðingarstofunni á Hreiðrinu, sama ljósmóðirin tók á móti þeim báðum (Anna Eðvaldsdóttir) og eftir fæðingarnar fórum við á sama fjölskylduherbergið á Hreiðrinu.

Þær systur voru líka næstum því alveg nákvæmlega jafn stórar, Andrea bara pínu lítið stærri (45 gr þyngri, 1 cm lengri og með 0,5 cm stærra höfuð). Greinilega sama uppskriftin notuð í bæði skiptin :)

Þær voru alveg ótrúlega líkar þegar þær voru nýfæddar, okkur fannst við bara vera með litla Kötlu þegar við fengum Andreu í fangið, en það hefur heldur betur breyst. Þær voru bara líkar fyrsta daginn hennar Andreu :) Í dag eru þær nefnilega EKKERT líkar, sést varla systrasvipur á þeim. Katla þykir mjög lík pabba sínum og hans fólki og Andrea mjög lík (sumir segja alveg eins og) mömmu sinni (og Valdísi yngstu systur mömmu), svo þessu er bara mjög bróðurlega skipt öllu saman :)



Mamma okkar heitir Þórey og pabbi okkar Eysteinn. Þau eru bæði lyfjafræðingar. Þau eru rosalega ánægð með okkur og finnst við fallegustu og flottustu stelpur í öllum heiminum. Þeim finnst þau rosalega heppin að hafa eignast tvö svona fullkomin eintök :o)




Við litla fjölskyldan búum í sveitasælunni á Álftanesi. Þar er gott að búa.



Síðan okkar er læst en alls ekki vera feimin við að sækja um lykilorðið ef þið þekkið okkur. Sendið bara póst á thoreyt@hotmail.com og ykkur verður svarað um hæl.




Annað:
Þú ert gestur nr. 27305